Hér er á ferðinni önnur bókin í Ókei bæ-bálknum hans Hugleiks. Eins og í þeirri fyrri eru sögurnar löðrandi í hryllingi, ást og sadisma. Hugmyndaflug Hugleiks virðist engin takmörk sett; hver saga er öðrum fyndnari og bókin í heild drepfyndin, í orðsins fyllstu merkingu, og lætur sér ekkert óviðkomandi. Þarna eru sögur af fyrirmyndarföður, risaeðlum, heimi dýranna, geimverum og Hugleiki sjálfum.
Sem sagt: Eitthvað fyrir alla!
Höfundur: Hugleikur Dagsson