Björgunarsveitir eru sendar inn í Lónsöræfi í leit að hópi fólks sem er saknað. Hvaða erindi áttu þau í óbyggðir um hávetur? Af hverju yfirgáfu þau það litla skjól sem þau höfðu, illa búin og berskjölduð? Á sama tíma gerast undarlegir atburðir á ratsjárstöðinni á Stokksnesi. Og á nesinu er gat í sjávarklöpp sem sogar til sín fólk ...
Hér er ekki allt sem sýnist, hvort sem það er blóðblettur í snævi þöktu landslagi fjarri mannabyggðum, truflanir á ratsjá eða barnsskór sem kemur óvænt fram áratugum eftir að hann hvarf.
Bráðin eftir Yrsu Sigurðardóttur er mögnuð saga sem fær hárin á lesandanum til að rísa.
Yrsa er ekki bara drottning íslensku glæpasögunnar heldur er hún líka jafn fær og Stephen King í því að vekja með lesandanum ótta og skapa óhugnað. Independent um Ég man þig