Bjór
Ölgerðin Egill Skallagrímsson er elsta ölgerð landsins, en hún var sett á laggirnar 1913 af Tómasi Tómassyni. Upphaflega var ætlun hans að brugga öl, en bjórbannið sem sett var nokkrum árum síðar setti strik í reikninginn. Engu að síður bruggaði Ölgerðin bjór á bannárunum, en sá bjór var seldur hermönnum, fyrst breskum en svo bandarískum.
Bjór eða kornöl á sér langa sögu. Fundist hafa leifar af slíkum drykk í vel forvörðum mögum egypskra faraóa og heimildir eru til um drykkinn frá tímum Babýlón. Þegar menning Grikkja og Rómverja reis hvað hæst, hvarf bjórinn af borðum helstu menningarþjóðanna, enda átti vín frekar upp á pallborðið þá. Hins vegar voru það Germanir, Keltar og aðrar barbarískar þjóðir sem héldu fast í þann sið að drekka öl og má segja, að þeir hafi lyft bjór á þann virðingarsess sem hann situr í nú.
Ölgerðin bruggar í dag allmargar tegundir bjórs, sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í erlendum bjórkeppnum, þeirra á meðal hinni virtu Monde Selection. Bruggmeistari Ölgerðarinnar heitir Guðmundur Mar Magnússon en hann hefur náð miklum árangri í fagi sínu og er t.a.m. eftirsóttur dómari í bjórkeppnum erlendis.












