Product 53/75
Páll Óskar & Sinfó í Hörpunni á CD og DVDÍ þessum veglega pakka má finna hljóð- og myndupptökur frá herlegheitunum og hefur verið ekki síður mikið lagt í útgáfuna og tónleikana sjálfa. Fjöldi myndavéla var notaður til að ná sérstaklega mörgum sjónarhornum og er upplifun áhorfendans tekin á nýtt stig. Pakkinn inniheldur tónleikana á mynddiski annars vegar og hljóðdiski hins vegar. DVD diskurinn er stútfullur af áhugaverðu aukaefni; þar á meðal eru heimavideo frá æfingum, ljósmyndasafn og karaókí útgáfur af lögunum. Íslenskur og enskur texti er á DVD diskinumSérstök viðhafnarútgáfa af pakkanum verður einnig fáanleg í takmörkuðu magni; verður þar um að ræða umslag úr stáli og heilan bónus geisladisk (Uppklapp) með samansafn af smellum frá Páli Óskari sem hafa verið meðal vinsælustu laga þjóðarinnar síðustu ár en eiga það sameiginlegt að hafa aldrei áður komið út á diski. Uppklapp diskurinn inniheldur að auki endurhljóðblandanir sem hafa aldrei verið gefnar út áður.