Heimsatlas Máls og menningarÁ undanförnum árum hefur fjöldi nýrra ríkja orðið til og ný landamæri verið dregin. Þessi íslenski heimsatlas, sá stærsti sem komið hefur út hér á landi, sýnir þessa heimsmynd nú á nýrri öld. Við gerð hans var notast við nýjustu tækni í kortagerð. Kortin eru unnin eftir gervihnattamyndum með stafrænum aðferðum sem gerir áferð þeirra einstaklega lifandi og gefur lesandanum skarpa sýn á landslag og landshætti. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda, skýringarmynda og sér korta. Allur texti og kort auk nafnavísis eru á íslensku.Höfundar: Björn Þorsteinsson, Hans H. Hansen, Kristján B. Jónasson