Fóstbræður var sjónvarpsþáttur sem hóf göngu sína 1997. Þátturinn varð upphaflega til á Stöð 3 en síðan sýndur á Stöð 2 og naut mikillar hylli, einkum og sér í lagi á meðal ungu kynslóðarinnar.
Fóstbræður byggðust að mestu á stuttum sjálfstæðum grínatriðum, þó eru til einstök dæmi um heildstæða þætti. Allar seríurnar voru gefnar út á myndiska árið 2007.
Upphaflegir meðlimir voru:
• Jón Gnarr
• Sigurjón Kjartansson
• Helga Braga Jónsdóttir
• Hilmir Snær Guðnason
• Benedikt Erlingsson
Hilmir var einungis í fyrstu þáttaröðinni en eftir hana kom Þorsteinn Guðmundsson í hans stað.
Í þriðju þáttaröð bættist Gunnar Jónsson í hópinn.
Upphafslag þáttanna samdi Sigurjón Kjartansson. Styrmir Sigurðsson leikstýrði fyrstu seríunni. Óskar Jónasson þeim næstu, Sigurjón Kjartansson leikstýrði einni og Ragnar Bragason þeirri síðustu.
Sería 3 (þættir 1-8)
Aðalhlutvek: Benedikt Erlingsson, Himir Snær Guðnason, Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Helga Braga Jónsdóttir